Vivera-tanngómar
Viðhaltu nýja brosinu með Vivera®-tanngómum
Mikill tími, færni og fjárfesting fór í að skapa nýja og fallega brosið þitt. Til að tryggja að það endist um ókomin ár skaltu íhuga að nota Vivera-tanngóma.
Mikilvægi viðhalds
Rannsóknir sýna að án viðhalds geta tennur sem búið er að rétta farið aftur í upphaflega stöðu með tímanum. Það er mjög algengt vandamál sem fylgir öllum tannréttingum en afar auðvelt er að koma í veg fyrir það. Vivera-tanngómar vernda bros þitt nú og í framtíðinni.
Hvers vegna Vivera-tanngómar?
Vivera-tanngómar eru búnir til með sömu tækni og Invisalign-skinnur. Það þýðir að með því að nota Vivera-tanngóma til að viðhalda nýja brosinu nýturðu góðs af sömu byltingarkenndu eiginleikum og einkenna skinnurnar.